149. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2018.

rannsókn kjörbréfs.

[15:05]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mælir einróma með samþykkt kjörbréfsins og telst það samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum. Ellert B. Schram hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju. Hv. þingmaður er húsum hér vel kunnugur en hann tók fyrst sæti á Alþingi Íslendinga 1971.