veggjöld.
Virðulegur forseti. Á þingmálaskrá ráðuneytis míns er mál á vorþingi, í mars, þar sem við myndum fjalla um félag sem myndi taka á þessu. Hér erum við að fjalla um þingsályktunartillögu til langs tíma og það er rétt sem hv. þingmaður vísar til, það er ekki klókt að vera að hreyfa mikið við 2019 og 2020, einfaldlega vegna þess að Vegagerðin er komin langt í það ferli. Aftur á móti getur nefndin sett fram áætlun sem er þingsályktunartillaga og hún getur m.a. falið það í sér að ráðherra sé skylt að koma með frumvarp eins og reyndar til stóð að gera eftir nokkra mánuði þegar við sjáum betur þessa mynd. Ég held að það sé óhjákvæmilegt í ljósi þess, ef allt gengur eins og að er stefnt, að það þurfi síðan nýja samgönguáætlun næsta vetur þar sem við römmum inn allt það sem við höfum verið að gera.
Varðandi borgarlínuna er einmitt skýrt að þar koma inn fyrstu áfangarnir 2019 og 2020 og síðan er mjög skýr texti um það sem gerist í framhaldinu. Við skrifuðum undir viljayfirlýsingu í september og þetta er niðurstaða (Forseti hringir.) þessa hóps sem skilaði af sér upp úr miðjum nóvember.