áhrif fátæktar á heilsu fólks.
Virðulegur forseti. Í nýlegri grein sem ég las í blaði einu kemur fram að gerð hafi verið könnun í Bretlandi á áhrifum fátæktar á ævilíkur kvenna. Háskóli í Bretlandi gerði könnunina 2001–2016 og þar kemur fram að dauðsföll meðal Breta sem búa við fátækt, sérstaklega meðal kvenna, eru mörg. Munur á milli kvenna sem lifa við fátækt og þeirra sem lifa við velmegun er um sjö ár og bilið eykst. Konur sem lifa við fátækt lifa að meðaltali 78,8 ár í Bretlandi. Þær sem eru efnameiri lifa að meðaltali 86,7 ár.
Ég er hræddur um að gera þurfi slíka könnun hér. Það þarf að athuga þetta vegna þess að ég veit um fólk sem fer ekki til læknis af því að það hefur ekki efni á því. Það byrjar á því að ganga frá húsnæðinu, síðan er það fæðið og læknisþjónustan er ekki í forgangi.
Þetta eru mjög sláandi tölur og ég spyr því hæstv. heilbrigðisráðherra og hvort þetta hafi verið skoðað hérna og hvort það sé nokkuð öðruvísi hér á landi en í Bretlandi. Ég held að við þurfum að athuga það vel og vandlega vegna þess að það er grafalvarlegt mál ef bæði konur og karlar, að vísu er það aðeins minna meðal karla en kvenna, geta ekki leita sér læknishjálpar vegna fátæktar. Það bitnar illa á þeim.