149. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2018.

áhrif fátæktar á heilsu fólks.

[15:23]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Í fyrsta lagi er því til að svara að Rúnar Vilhjálmsson hefur gert kannanir sérstaklega á því hvort og þá hverjir á Íslandi, karlar og konur, skipt eftir efnahag, hafi verið að neita sér um læknisþjónustu og lyf. Mig minnir að nýjustu tölur hvað þetta varðar séu kannski fimm ára, eitthvað svoleiðis. Ég átti fund með honum nú á dögunum þar sem ég óskaði eftir því að þetta yrði gert aftur ásamt úttekt á fleiri þáttum sem lúta að heilbrigðisþjónustunni, bæði það hvernig fólk upplifir þjónustuna og hvað megi gera betur í henni.

Ég er sammála hv. þingmanni um að fátækt er eitt það alvarlegasta mein sem við þurfum að vinna gegn. Það er raunar þannig að samkvæmt heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna er það markmið númer eitt að vinna gegn fátækt. Ég tek það mjög alvarlega í mínu embætti og geri það fyrst og fremst með því að stuðla að því að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga. Á næsta ári höfum við úr 400 milljónum að spila til að draga enn meira úr greiðsluþátttöku sjúklinga til viðbótar við það að draga sérstaklega úr tannlæknakostnaði aldraðra og öryrkja sem er líka aðgerð gegn fátækt, þ.e. að koma í veg fyrir það eins og við getum að fátækt komi í veg fyrir að fólk geti notið heilbrigðisþjónustu og lyfja.

Ég vil líka nefna, af því að hv. þingmaður talar sérstaklega um kyn, að það skiptir gríðarlega miklu máli að við greinum heilbrigðisupplýsingar meira en við höfum verið að gera með tilliti til kyns. Það eru stórar breytur þar sem eru verulega áberandi, þarna eru kynin ólík. Ég vil sérstaklega nefna þá rannsókn sem stendur yfir og lýtur að áfallasögu kvenna og tengslum áfalla við heilsu og heilbrigði síðar á lífsleiðinni.