áhrif fátæktar á heilsu fólks.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir að halda þessu máli svona kirfilega á dagskrá af því að það skiptir gríðarlega miklu máli. Þingmaðurinn nefnir hér almenn félagsleg skilyrði, ef svo má segja, sem gera það að verkum að fólk situr uppi með það að forgangsraða heilbrigðisþjónustu neðar á listann en ella væri ef ekki væri við fátækt að etja.
Nú er staðan þannig að húsnæðiskostnaður er langt fram úr því sem eðlilegt getur talist. Það er fjöldinn allur af Íslendingum sem býr við ófullnægjandi húsnæðisaðstæður sem eru beinlínis heilsuspillandi og hafa áhrif á daglegt líf og þar með lífsgæðin og möguleika á því að halda heilsu og byggja hana upp sé hún ekki eins og best verður á kosið. Ég vil segja það hér undir þessum lið að ég er að skoða það með hvaða hætti best sé að nýta þessar 400 milljónir á árinu 2019 og ég vonast til þess að geta greint þinginu frá því mjög fljótlega. Meginmarkmið mitt þar er að jafna aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag.