samkomulag Sameinuðu þjóðanna um flóttamenn og farendur.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir svörin. Málið er þannig vaxið að í samþykktinni stendur að hún sé ekki lagalega bindandi og kom það fram í máli forsætisráðherra. Því hlýtur að sæta nokkurri furðu að það þurfi að setja fyrirvara við það sem ekki er bindandi. Maður hlýtur að setja spurningarmerki líka við það að Sameinuðu þjóðirnar, sem við erum hluti af og höfum áður tekið þátt í samvinnu með þeirri stofnun, þurfi að taka þetta sérstaklega fram, ekki bara vegna þess að hún setur ekki lög heldur að þjóðirnar þurfa að svara með þessum hætti. Hvers vegna er það svo að þjóðir sem eru í Evrópusambandinu setja fyrirvara eða neita að skrifa undir slíkar samþykktir? Eru þær á einhverjum öðrum stað en við erum hér á Íslandi?