vöktun á súrnun sjávar.
Herra forseti. Að allt öðrum málum. Súrnun sjávar á heimsvísu er alvarleg staðreynd, það leikur enginn vafi á því. Því meir sem sjórinn mun líkjast sódavatni, því verra verður það. Súrnunin er hraðari í köldum sjó en heitum og hefur margvísleg áhrif á stórar sem smáar lífverur, t.d. allar sem eru kalkríkar. Súrnunin mun ganga upp alla lífkeðjuna ef hún nær langt á næstu áratugum.
Norður-Atlantshafið og Norður-Íshafið eru risahafsvæði og Ísland ræður yfir hafsvæði sem er sjö sinnum flatarmálið. Vöktun á súrnun hér á landi hefur staðið yfir í ríflega þrjá áratugi og hefur hún borið vott um mikla framsýni. Þar hafa bæði Hafrannsóknastofnun og Háskóli Íslands átt samstarf. Ég tel mjög brýnt að bæta þá vöktun. Þar er alþjóðleg samvinna lykilatriðið á vettvangi norðurslóðasamstarfs eða Norðurlandasamstarfs eða milliþjóðasamstarfs eða hvaðeina.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað líður í þessum efnum vöktum og þessari millilandasamvinnu eða alþjóðasamvinnu varðandi súrnunina?
Súrnunin getur haft og er kannski þegar farin að hafa áhrif á íslenskan sjávarútveg og þar þarf að vinna úttekt, koma með ólíkar sviðsmyndir miðað við mislangt gengna súrnun. Þá spyr ég hæstv. ráðherra: Þarf ekki að koma á dagskrá slíkri úttekt? Hvernig mætti helst gera það?