vöktun á súrnun sjávar.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Og jú, það er brýnt að auka rannsóknir. Stundum er sagt að vísindamenn séu sífellt að fara fram á auknar rannsóknir en í þessu tilviki er það mjög mikilvægt. Eins og ég kom fram með hér áðan þá gengur súrnunin hraðar í köldum sjó en heitum.
Aðeins varðandi þessa úttekt sem ég var að auglýsa eftir. Það hefur einmitt komið fram í mínum samtölum, bæði við bandaríska vísindamenn og íslenska, að brýnt er að fara að hyggja að þessu nú þegar. Hægt er að setja upp ólíkar sviðsmyndir af því hver súrnun er orðin og reyna síðan að komast að þessu, hvernig þetta muni hugsanlega líta út. Það er hægt að hugsa sér þetta doktorsverkefni í tengslum við einhverja háskóla eða alþjóðlegt doktorsverkefni meðal nokkurra sérfræðinga en líka að setja niður sérfræðinganefnd, íslenska sem alþjóðlega, til að komast að hinu sanna.