149. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2018.

framkvæmdir við Arnarnesveg og um stefnumörkun í samgöngumálum.

429. mál
[15:50]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Guðmundur Andri Thorsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. samgönguráðherra um ástæður þess að framkvæmdir við Arnarnesveg skuli hafa dregist svo mjög sem raun ber vitni og hvort ráðherra telji ásættanlegt að þær dragist enn frekar. Í framhaldi af því vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji ekki mikilvægt að það endurspeglist við stefnumörkun í samgöngumálum að mörg fjölmennustu sveitarfélög landsins eru á suðvesturhorninu. Arnarnesvegur, sem hér um ræðir, á að liggja frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut. Þessi framkvæmd var inni á síðustu samgönguáætlun, 2011–2022, en hefur nú enn verið slegið á frest í nýrri samgönguáætlun og er ekki áformuð fyrr en 2024. Margoft hefur komið fram, og nú síðast í harðorðu bréfi sem bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, sendi okkur þingmönnum Suðvesturkjördæmis í síðasta mánuði, að þessi framkvæmd sé í orðsins fyllstu merkingu lífsnauðsynleg þar sem viðbragðstími í efri byggðum Kópavogs stenst ekki þær kröfur sem eru gerðar um sjúkraflutninga og eldsvoða.

Umferð í gegnum Vatnsendahverfið er orðin allt of mikil og gatnamót Breiðholtsbrautar og Vatnsendavegar er löngu sprunginn, en þar fara um yfir 12.000 bílar á sólarhring með tilheyrandi töfum.

Virðulegi forseti. Hér á suðvesturhorni landsins býr ansi margt fólk sem greiðir skatta og skyldur og kýs fulltrúa sína til setu á Alþingi en virðist eigi að síður stundum mæta einhvern veginn afgangi þegar kemur að útdeilingu fjár til vegaframkvæmda eins og Hafnfirðingar hafa heldur ekki farið varhluta af. Má í því sambandi minna á það ófremdarástand sem hlotist hefur af því að Reykjanesbraut, fjölfarnasta þjóðbraut landsins, liggur í gegnum bæinn þeirra. Ég held að það sé útbreidd tilfinning hjá þessum íbúum fjölmennustu sveitarfélaga landsins að þeir séu sniðgengnir, nema nú virðist allra náðarsamlegast vera í bígerð að leyfa þeim að greiða sjálfir fyrir samgöngubætur með veggjöldum — ekki vegtollum, sem hæstv. ráðherra er ákaflega andvígur að því er kom fram áðan, heldur veggjöldum.