framkvæmdir við Arnarnesveg og um stefnumörkun í samgöngumálum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni fyrir fyrirspurnina og tek undir hvatningu hans til hæstv. ráðherra samgöngumála um að raða því framar í samgönguáætlun að klára framkvæmdir við Arnarnesveg. Eins fram og kom í máli hv. þingmanns er löngu orðið brýnt að þær samgöngubætur verði gerðar enda snúast þær um öryggi þúsunda íbúa sem búa á svæðinu. Íbúar hafa sjálfir lagt áherslu á það við kjörna fulltrúa en sveitarstjórnarfólk hefur líka bent á það af miklum þunga undanfarin ár og hefur beitt sér í málinu, bæði við okkur og ráðuneytið, þannig að ég hvet hæstv. ráðherra til dáða þegar kemur að þessum framkvæmdum.
Varðandi veggjöldin sem fyrirspyrjandi kom inn á í fyrirspurn sinni er þar um að ræða pólitíska ákvörðun sem við verðum líka að gefa okkur tíma til að ræða í þaula, enda er það stór og fyrirferðarmikill hluti af því að ýta framkvæmdum framar í samgönguáætlun. (Forseti hringir.) Þá verður það að ræðast innan veggja þingsins.