149. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2018.

framkvæmdir við Arnarnesveg og um stefnumörkun í samgöngumálum.

429. mál
[15:59]
Horfa

Una María Óskarsdóttir (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni fyrirspurnina. Ég þakka einnig hæstv. ráðherra svörin og tek undir áhyggjur vegna dráttar á framkvæmdum við Arnarnesveg.

Hvernig má það vera að hægt sé að taka ákvörðun um að fresta svo veigamikilli framkvæmd? Samkvæmt áætlun hæstv. ráðherra á framkvæmdin að hefjast 2024 en ekki 2019, eins og áður var áætlað. Framkvæmd Arnarnesvegar skiptir sköpum fyrir öryggi meiri hluta þjóðarinnar sem býr hér á suðvesturhorninu. Arnarnesvegur mun létta á umferð og efla þar með öryggi almennra vegfarenda á svæðinu, sem er öllu mikilvægara.

Ég var nýlega á fundi með slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins. Staðan er grafalvarleg, eins og áður hefur komið fram. Hún er óboðleg og hættuleg þar sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn komast ekki á milli staða á þeim tíma sem stofnunin hefur skilgreint sem ákvarðaðan viðbragðstíma. Kópavogsbúar (Forseti hringir.) og Garðbæingar eru auðvitað gapandi hissa á ákvörðun ráðherra.