framkvæmdir við Arnarnesveg og um stefnumörkun í samgöngumálum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni fyrir þessa fyrirspurn. Þetta er mjög nauðsynlegur vegur. Hann er bara einn áfangi í því að reyna að minnka a.m.k. þá stíflu sem alltaf myndast á Reykjanesbraut á álagstímum. Það er eiginlega óskiljanlegt að þessi vegaframkvæmd skuli ekki vera í algerum forgangi, að ekki sé gengið í það að leysa það mál bara einn, tveir og þrír. Eins og hann nefnir í sambandi við Suðvesturkjördæmið höfum við flóttamannaleið við Urriðakotsvatn og þar fram hjá. Hún er notuð, og núna er komið flóttamannanes yfir Arnarnesið og flóttamannagjá til að komast fram hjá Kópavogsgjánni. Fólk er sífellt að leita að einhverjum flóttaleiðum, en á sama tíma vantar ofanbyggðaveg sem var á dagskrá, hann var þarna inni, það var búið að teikna hann, en einhvern veginn hvarf hann. (Forseti hringir.) Það er þess háttar lausn sem við þurfum til að leysa þessi mál svo maður sitji ekki alltaf fastur í bílum á álagstímum.