framkvæmdir við Arnarnesveg og um stefnumörkun í samgöngumálum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga efni. Það er ekki tilviljun, herra forseti, að þingmenn sem geta talið sig til þingmanna Kópavogs skuli fjölmenna í ræðustól og ræða þetta mál sérstaklega vegna þess að málið er afar brýnt og hefur lengi verið til umræðu innan sveitarstjórnar í Kópavogi og raunar áður á þingi. Það er eiginlega ótrúlegt að framkvæmdin sem slík skuli ekki vera löngu kláruð af því að þeir sem til þekkja, þekkja 90°-beygjuna sem núna er á Rjúpnavegi sem er eiginlega alveg út úr kú og alveg makalaust að ekki skuli hafa orðið fleiri slys þar en þó hafa orðið. Það væri óskandi að hæstv. ráðherra og Alþingi fyndu leiðir til að bæta úr þessu.