framkvæmdir við Arnarnesveg og um stefnumörkun í samgöngumálum.
Virðulegur forseti. Það er erfitt að gera stutta athugasemd í svo stóru og veigamiklu máli, en þetta vil ég þó segja: Ég fagna því sem ráðherra kom inn á áðan, það er auðvitað nauðsynlegt að horfa út fyrir boxið og flýta stórum og mikilvægum framkvæmdum. Þá horfi ég sérstaklega á höfuðborgarsvæðið, en ég veit að þær eru víða. Ég verð þó að nota tækifærið og taka fram að verkefnið sem hæstv. ráðherra nefndi, tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna, fól í sér að fresta ákveðnum stórum framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu. Arnarnesvegurinn var ekki ein af þeim framkvæmdum því að hann var á áætlun. Það var aldrei hluti af samkomulaginu að þeim vegi yrði frestað.
Ég fagna því aftur og hvet hv. umhverfis- og samgöngunefnd til að taka það inn í málið núna því að við vitum öll að þessi vegur er gríðarlega mikilvægur. Á sama tíma er ástæða til að horfa á þann samning sem gerður var um niðurgreiðslu á almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. En munum það líka að almenningssamgöngur eru ekki lögbundið verkefni sveitarfélaga. Alls staðar í kringum okkur er það sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga að halda uppi (Forseti hringir.) öflugum almenningssamgöngum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)