framkvæmdir við Arnarnesveg og um stefnumörkun í samgöngumálum.
Forseti. Í þessari umræðu hér, sem ég þakka hv. þingmanni fyrir, kristallast sú staðreynd sem ég held að okkur öllum sé fullkunnugt um. Hún er líklega fáum öðrum betur kunnug en hæstv. samgönguráðherra þar sem hann stendur frammi fyrir því að forgangsraða verkefnum sem við getum öll fært nokkuð góð rök fyrir því að eigi öll að vera fremst í forgangsröðuninni. Það er ekkert sérlega auðvelt verkefni.
Ég fagna því að komnar séu niðurstöður úr vinnuhópum sem lúta að breyttri fjármögnun, sem lúta að betri samgöngum, bæði almenningssamgöngum og öðrum hér á höfuðborgarsvæðinu, og betri flugsamgöngum og flugvöllum. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að þetta sé það seint fram komið, að svo stór úrlausnarefni þurfi það mikla umræðu að annað sé ótækt en að fresta þessu fram yfir jól ef vel á að vera. Ég átta mig satt best að segja ekki á því að þörf sé á að keyra þetta mál áfram á svona miklum hraða. Það er að mínu mati ekki einu sinni svo mikill pólitískur ágreiningur um málið. (Forseti hringir.) Við þekkjum þörfina, þetta eru vel ígrundaðar tillögur sem koma fram. Það þarf hins vegar tíma til að setja þær saman í eina heildstæða áætlun og ræða við fólk um þessar grundvallarbreytingar sem þær fela vissulega í sér fyrir íslenskt samfélag.