framkvæmdir við Arnarnesveg og um stefnumörkun í samgöngumálum.
Hæstv. forseti. Mér fannst rétt að hér heyrðist rödd úr öðru kjördæmi en því sem hér um ræðir. Hv. þingmenn hafa komið upp og spurt: Af hverju er þessi framkvæmd ekki í forgrunni? Hún er sú mikilvægasta.
Það er alveg rétt. En fólk í öðrum kjördæmum hefur líka þessa röksemdafærslu með verkefnin á sínu svæði og það fólk hefur líka rétt fyrir sér. Vissulega er mikill umferðarþungi hér. Það hefur mikið breyst á stuttum tíma. Okkur hefur ekki tekist að hafa þá stefnu hér að taka þátt í að nýta almenningssamgöngur almennt séð þannig að við erum mikið á okkar eigin bílum. Við stöndum frammi fyrir risastóru verkefni sem enginn pólitískur ágreiningur er um. Ég ætla rétt að vona að við berum gæfu til að gefa sjálfum okkur það og þjóðinni í jólagjöf að við komum þessum mikilvægu verkefnum áfram og náum að stíga skref núna. Við ætlum að stíga út fyrir kassann og takast á við þetta verkefni af alvöru.