framkvæmdir við Arnarnesveg og um stefnumörkun í samgöngumálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og ég þakka þeim fjölmörgu sem tóku til máls um þessa fyrirspurn og tóku undir með mér um nauðsyn þessarar framkvæmdar. Flest af því sem þar kom fram um tek ég undir heils hugar, þó ekki allt. Mér fannst sumt kannski nokkuð fært í stílinn. Arnarnesvegur er vissulega ansi stór framkvæmd en ég myndi kannski ekki kalla Arnarnesveg risavaxið verkefni, eins og mér heyrðist hv. þm. Jón Gunnarsson tala um áðan.
Eins held ég að það sé nokkuð ofmælt að Arnarnesvegur hafi ekki komist á dagskrá vegna þess að borgarstjórinn í Reykjavík hafi sérstaklega lagst gegn þeirri framkvæmd eða þar hafi hamlað alveg sérstaklega áform um auknar almenningssamgöngur. Ég held að almenningssamgöngur komi þessu máli ekkert við.
Ég ítreka þakkir mínar fyrir þessa umræðu og vil ljúka þessu á því að vitna í það sem fram kemur í umsögn frá bæjarráði Kópavogs um samgönguáætlun og þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Í samgönguáætlun 2011–2022 lenti Arnarnesvegur milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar í enn einni frestuninni og var færður aftar á samgönguáætlun eða yfir á tímabil þrjú, árin 2019–2022. Nú er gengið enn lengra og veginum frestað til áranna 2024–2028. Kópavogsbúar hafa sýnt mikla biðlund og tóku síðustu frestun þegjandi í ljósi aðstæðna. Þessi nýjasta frestun er hins vegar ekkert annað en dónaskapur gagnvart íbúum Kópavogs (Forseti hringir.) og höfuðborgarsvæðisins alls.“