námsgögn fyrir framhaldsskóla.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda og ráðherra fyrir svörin. Ég get tekið undir heilmargt af því sem hér hefur komið fram, þ.e. með brotthvarfið og ástæður þess. Það er mjög mikilvægt að hafa námsefni og kennsluaðferðir fjölbreyttar. Ég hef verið kennari og náms- og starfsráðgjafi í grunnskóla og líka í framhaldsskóla og ég tek undir það sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson nefndi um lesblindu.
Þegar ég var í náms- og starfsráðgjöf í framhaldsskóla gekk ég svolítið á nemendur og spurði hvernig þeim líkaði að vinna og hvað hentaði best. Það var fyrst og fremst það að lesa af tölvu, geta stækkað letur, geta notað filmur og annað slíkt sem hentaði betur og mismunandi framsetning hentar ólíku fólki. Ég held að það sé númer eitt, tvö og þrjú. Það er jöfnunartæki að geta boðið nemendum upp á að nota þau gögn sem þeim hentar en við þurfum líka, og það er rétt sem hæstv. ráðherra sagði, að bjóða efni á íslensku. Það eitt og sér er auðvitað jöfnun. Þó að það sé gott að geta kennt ensku í framhaldsskóla, þá eru það ekki allir sem geta lesið hana.