149. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2018.

námsgögn fyrir framhaldsskóla.

407. mál
[16:50]
Horfa

Una María Óskarsdóttir (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og jafnframt fyrirspyrjanda. Hér er verið að ræða um fjölbreyttar kennsluaðferðir, meðal annars í tengslum við brottfall úr framhaldsskóla. Ég tek undir það sem fram hefur komið varðandi íslenskuna, námsgögn, tækni og lesblindu sem allt eru mjög góð innlegg.

En það sem ég vil bæta við er samstarf heimilis og skóla. Það þarf líka að eiga sér stað þegar börn og unglingar eru komin í framhaldsskóla. Mikilvægt er að kennarar nái til nemenda, eins og í grunnskólanum að börnin okkar verði læs. Og ég tala nú ekki um að foreldrarnir eigi gott samstarf við bæði grunnskóla og framhaldsskóla. Ég tel að það þurfi að gerast líka í framhaldsskóla til að hefta brottfall. Ég held að þetta sé grunnur sem þurfi að leggja mun ríkari áherslu á en gert hefur verið.