námsgögn fyrir framhaldsskóla.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og öllum þeim hv. þingmönnum sem tóku til máls kærlega fyrir góðar umræður og það er ljóst að þetta er málefni sem brennur á okkur mörgum, eðlilega. Ég er sérstaklega ánægð með að hæstv. ráðherra gaf tóninn í lok erindis síns eða ræðu um rafrænu námsgögnin. Það var þangað sem mig langaði að fara í seinni umferð hjá mér vegna þess að ég trúi því eiginlega að það sé lykillinn að þessum úrlausnarefnum að stóru leyti. Það er ódýrara. Það er auðveldara að endurnýja slík námsgögn. Þau eru nýrri í tíma, íslenskan, það eru ekki vandamál þar, þ.e. við íslenskuna, og við erum að koma til móts við þarfir eða venjur þeirrar ungu kynslóðar sem er vön að fara á YouTube eða hvað það er til að leita leiða við eiginlega hvað eina sem er. Ég held að varla sé til það úrlausnarefni milli himins og jarðar sem ekki er hægt að fá alla vega einhverjar leiðbeiningar um með því að fara þar inn. Það kunna ungmennin vel. Því til viðbótar gefur það kennurum færi á að setja sinn brag á þetta.
Mér þætti gott að heyra frá hæstv. ráðherra í lokin — ég er glöð að heyra með þessa stefnu sem hún talar um og þessa vinnuhópa og ég hlakka til að sjá útkomuna.
En mig langar til að heyra hvort ekki sé örugglega verið að tryggja þar líka annars vegar að kennarar geti sett sinn brag á þetta og hins vegar að heilbrigð samkeppni sé í námsgagnagerðinni. Þannig að það verði einhvers konar keppni um að gera það sem best úr garði efnislega og að framsetningin sé þannig að raunverulega sé gott fyrir nemendur að nýta sér þetta fjölbreytta efni.
Ég segi það fyrir mína parta að það skýtur einfaldlega skökku við ef menntakerfið sjálft er að reka lestina í þessari þróun. Það er ekki sérstaklega góð vísbending um framtíðina hjá okkur. Hvað varðar námsgögn hljótum við að þurfa að fara að standa jafnfætis öðru efni sem ungmenni í dag eru að leita sér upplýsinga um.