rafvæðing hafna.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn um rafvæðingu hafna. Ég ætla í svari mínu að fara yfir stöðu þeirra mála, hvað er fram undan, og svara spurningum hv. þingmanns. En fyrst að undirbúningi rafvæðingu hafna svo að skip geti nýtt innlenda raforku. Því er til að svara að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að uppbygging flutnings- og dreifikerfis raforku skuli styðja við áætlanir um orkuskipti sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, t.d. með innviðum fyrir rafvæðingu hafna. Eitt áhersluatriði í samgönguáætlun 2019–2033 er að styðja við umhverfislega sjálfbærar samgöngur með því að skip verði tengd rafmagni í höfnum og allar nýjar ferjur verði knúnar umhverfisvænum orkugjöfum í samræmi við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum 2018–2030.
Þann 31. maí 2017 samþykkti Alþingi, eins og við þekkjum, þingsályktun um aðgerðaáætlun um orkuskipti sem hefur það að markmiði að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og auka hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa. Í haftengdri starfsemi er markmiðið að auka hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í 10% fyrir árið 2030, sem var aðeins 0,1% árið 2016. Eitt af þeim verkefnum sem kveðið var á um í þingsályktuninni sneri að mótun aðgerðaáætlunar um orkuskipti í íslenskum höfnum með áherslu á aukið framboð rafinnviða fyrir skip.
Ráðuneytið fékk fyrr á þessu ári Íslenska nýorku hf. og Hafið í lið með sér við að vinna slíka aðgerðaáætlun um orkuskipti í höfnum og þeirri skýrslu var skilað til ráðuneytisins í síðustu viku. Þar er að finna tillögur að aðgerðum sem hið opinbera getur lagt í til eflingar rafinnviðum í höfnum hér á landi. Aðgerðaáætlun tekur til styrkingar núverandi rafinnviða í höfnum. Henni fylgja auk þess tillögur sem styðja við áætlunina og leiðbeina stjórnvöldum til raunhæfrar uppbyggingar innviða með það fyrir augum að ávinningur af aðgerðum sé sem mestur.
Aðgerðaáætluninni fylgja ekki kostnaðartölur en þar er lagt til að metinn verði ávinningur af frekari rafvæðingu hafna samhliða kostnaði við slíka framkvæmd. Það er þá okkar næsta skref. Að fengnum þeim niðurstöðum verður unnið að því að auka framboð rafinnviða fyrir skip í höfnum í því skyni að draga úr bruna jarðefnaeldsneytis skipa sem liggja við bryggju. Þá ber jafnframt að geta þess að í ráðuneytinu er unnið að því með Orkusetri að móta tillögur um styrki frá Orkusjóði sem úthlutað verður til uppbyggingar innviða fyrir komandi orkuskipti í samræmi við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, m.a. til hafna. Varðandi kostnað við rafvæðingu hafna landsins og hve mikið rafafl þyrfti til rafvæðingarinnar er það að segja að hafnir á Íslandi bjóða almennt upp á tengingu við lágspennt rafdreifikerfi, eins og hv. þingmaður kom inn á, sem hentar skipum upp að ákveðinni stærð. Núverandi kerfi mætir þörfum flestra fiskiskipa, varðskipa og annarra skipa sem eru 300 brúttótonn. Í umhverfisskýrslu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi frá árinu 2017 kemur fram að öll íslensk fiskiskip geta í dag tengst rafmagni úr landi. Í skýrslunni segir að rafmagnskerfi sem fiskiskipaflotinn hefur aðgang að í íslenskum höfnum sé almennt séð nokkuð gott. Þó getur sú staða komið upp að tengingarnar ráða ekki við orkuþörf skips, t.d. þegar verið er að landa afla. Þurfi skip meiri orku en í boði er á hafnarbakka verður að keyra ljósavél um borð í skipunum.
Þá létu samtökin meta hversu langan tíma það tæki að greiða upp kostnað vegna kaupa á búnaði í skip til að taka við rafmagni úr landi og niðurstaðan varð að slíkt borgaði sig upp á eingöngu hálfu öðru ári. Fari aflþörf yfir 1 MW er afhending á raforku ekki möguleg nema með háspennutengingu og í þeim stærðarflokki eru einhver flutningaskip og farþegaskip. Í dag eru engar háspennutengingar í íslenskum höfnum en þó er í undirbúningi tenging í Landeyjahöfn og Vestmannaeyjum vegna nýrrar rafmagnsferju. Þá eiga Faxaflóahafnir í samstarfi við Íslenska nýorku og Hafið um úttekt á möguleikum þess að koma upp háspennutengingu á nýjum hafnarbakka utan Klepps.
Samkvæmt upplýsingum frá Faxaflóahöfnum er kostnaður vegna háspennubúnaðar áætlaður frá 280 millj. kr. fyrir flutningaskip en 560 millj. kr. fyrir farþegaskip. Erlendis hefur víðast hvar þurft framlag úr opinberum sjóðum til að fjármagna háspennutengingar. Þrjár hafnir í Noregi; Ósló, Kristiansand og Björgvin, hafa komið þessum búnaði upp og hafa styrkir komið úr svokölluðum NOx-sjóði, mengunargjald af eldsneytissölu til skipa. Landsnet áætlaði árið 2016 aflþörf vegna orkuskipta í höfnum í skýrslu sem bar heitið Möguleg orkuskipti á Íslandi fyrir stærstu hafnir landsins.
Í skýrslu Landsnets kemur fram að aflþörf skipa sé mismunandi eftir stærð. Til að mynda er aflþörf skemmtiferðaskipa 7.300 kW og flutningaskipa 4.000 kW en fiskiskip og togarar eru með aflþörf um 31 kW. Samkvæmt skýrslu Landsnets sýna útreikningar að aflþörf frá orkuskiptum í höfnum sé um 17 MW og inni í því eru öll skip, líka skemmtiferðaskip og flutningaskip. Þannig að sparnaður í losun vegna orkuskipta hafna var í sömu skýrslu metinn um 33.100 tonn af CO2 á ári. Á komandi ári, til að bæta örstutt við, fer Ísland með formennsku í norræna ráðherraráðinu og eitt af þremur áherslusviðum verkefnanna tengist hafinu. Undir þeim flokki er verkefnið orkuskipti og nýsköpun í höfnum. Þannig að það er margt fram undan. Ég kem betur inn á það í lokin.