149. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2018.

rafvæðing hafna.

372. mál
[17:34]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Mig langaði að koma hingað upp og þakka hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni fyrir að setja málið á dagskrá og fyrir þessa umræðu með hæstv. ráðherra. Mín skoðun er sú að við þurfum að ganga miklu lengra og miklu hraðar. Staðan er einfaldlega þannig og við sjáum það á öllum rannsóknarskýrslum og bara öllu að þess þarf.

Auðvitað er jákvætt að það sé verið að vinna að málinu en ég held að það sé sérstaklega nauðsynlegt að vekja athygli á höfnunum þar sem flest stóru skemmtiferðaskipin koma, svo sem á Akureyri og Ísafirði og svo má nefna líka Seyðisfjörð, og að þessar hafnir, auk náttúrlega Faxaflóahafna sem voru nefndar áðan, verði raftengdar. Sömuleiðis þurfum við að horfa á fleiri þætti í þessu samhengi eins og t.d. brennslu svartolíu innan íslenskrar lögsögu og sömuleiðis það að enn þá sé leyfður opinn hreinsibúnaður. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að þessi umræða verði tekin áfram og ákveðin skref tekin í áttina að því að breyta þessu.