áfangastaðaáætlanir fyrir landshlutana.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Fyrst til að svara hv. þingmönnum sem komu inn á kynninguna þá er ég alveg sammála því að það er næsta skref. Það var rætt sérstaklega á síðasta fundi Stjórnstöðvar ferðamála hver næstu skref væru í því að kynna þessar áætlanir fyrir almenningi, sveitarfélögum, öllum hagsmunaaðilum o.s.frv. vegna þess að ef það er ekki gert verður erfitt að koma málinu áfram.
Ég vil síðan taka undir með hv. þingmanni um markaðsstofurnar og starf þeirra sem er gríðarlega mikilvægt. Mér finnst það í grunninn þannig að við getum ekki verið án markaðsstofanna og þær ættu líklega erfitt með að vera án nokkurs stuðnings, og ég held að fólk sé almennt meðvitað um mikilvægi hvors um sig. Það hvernig markaðsstofurnar þróast og mögulega breytast, fá mögulega lögformlegt hlutverk, er ansi stórt verkefni sem myndi kalla á mikið samtal, bæði við markaðsstofurnar en líka við aðrar stofnanir og aðra vinkla í þessu kerfi okkar, vegna þess m.a. að þær eru sjálfsprottnar, eru mismunandi og umgjörð þeirra er mismunandi. Það þyrfti þá að nást einhver samstaða um það hvaða leið ætti að fara í því og hvert hlutverk þeirra er, einnig hvernig skiptingin er, kostnaður t.d. ríkis og sveitarfélaga, fyrirtækja á hverju svæði. Það er mjög mismunandi eftir markaðsstofum að hversu miklu leyti fyrirtæki á svæðinu greiða til þeirra o.s.frv.
Varðandi þetta nýja hlutverk er ég mjög opin fyrir því að skoða hvernig við getum tvinnað það saman vegna þess að ekki vil ég sjá en annað fyrirbæri til hliðar við markaðsstofur (Forseti hringir.) og til hliðar við allt hitt til að gegna einhverju ákveðnu hlutverki í þessu sem þarf síðan að fjármagna og alltaf einhver stofnkostnaður o.s.frv. Það er augljóst að hagsmunir þarna fara saman.