veiðigjald.
Frú forseti. Varðandi milliverðlagningu fékk nefndin oftar en einu sinni fulltrúa frá ríkisskattstjóra á sinn fund til að fjalla um þær áhyggjur að ekki væri hægt að greina þar á milli, að væntanlega væri verið að færa á milli veiða og vinnslu. Það kom fram á fundi nefndarinnar, sem var ekki efast um, að fulltrúar ríkisskattstjóra treystu sér til að vinna með þetta frumvarp og gera því þau skil að hægt væri að taka á því eins og hægt er að gera varðandi öll þau fyrirtæki sem skattalög um milliverðlagningu eru undir. Það er ekki bara sjávarútvegurinn, það eru auðvitað miklu fleiri fyrirtæki sem ákvæði í skattalögum varðandi milliverðlagningu ná til. Ef fyrirtæki í sjávarútvegi jafnt sem önnur fyrirtæki brjóta skattalög er það auðvitað bara hreint og klárt lögbrot. Það er grafalvarlegt ef það kemur í ljós.
En það kom skýrt fram að ríkisskattstjóri og fulltrúar þess embættis treystu sér algjörlega til eins og málið væri búið í þessu frumvarpi að vinna með það svo vel væri farið með. Hvorki fulltrúar minni hluta né meiri hluta í nefndinni vantreystu því að ríkisskattstjóri treysti sér til að vinna með þetta mál svo ekki var lögð fram nein efnisleg breytingartillaga varðandi þennan þátt af hálfu stjórnarandstöðunnar. Ég skildi það því þannig að menn treystu ríkisskattstjóra til að vinna með þetta mál.