störf þingsins.
Virðulegi forseti. Málefni eldra fólks, biðlistar, heilsufar, hjúkrunarheimili o.fl. hafa verið nokkuð til umræðu að undanförnu, m.a. í þingsal. Ég er einn þeirra sem hafa vakið athygli á því opinberlega að ef við ætlum að notast áfram við sömu aðferðir við þjónustu við eldra fólk og gera ráð fyrir sömu þjónustuþörf eftir því sem þjóðin eldist munum við ekki ráða við þann reikning sem fylgir. Hér þurfum við að horfa lengra fram í tímann og hugsa fyrir því hvernig við breytum hugsunarhætti og lífsháttum, hvernig við nálgumst það sem samfélag og einstaklingar að eldast.
Nýlega birtist vísindagrein eftir vísindamenn við Ball State háskólann í Indiana í Bandaríkjunum um áhrif ævilangrar hreyfingar á líkamlega heilsu. Þar kemur fram að fólk á miðjum áttræðisaldri sem hefur hreyft sig alla ævi er með lungnastarfsemi og vöðvauppbyggingu sem svipar til fólks á fimmtugsaldri. Það sem skiptir hins vegar meira máli er að vísindamennirnir komast að þeirri niðurstöðu að röskleg ganga í 30–45 mínútur á dag geti dugað til að ná umtalsverðum ávinningi með tilliti til heilsufars.
Þetta skiptir máli í lýðheilsulegu tilliti. Þetta þýðir að það að ganga eða hjóla í vinnuna eða eftir vinnu getur skipt sköpum fyrir afdrif okkar síðar á ævinni og þetta ítrekar enn mikilvægi þess að við sem samfélag leggjum alla áherslu á að uppfræða börnin okkar og barnabörn um mikilvægi hreyfingar, að við notum öll skólastig til að kenna börnum og ungmennum þessi aðalatriði.
Þótt hreyfing hafi kannski ekki alltaf úrslitaáhrif á t.d. tilurð veikinda eða hvort við veikjumst er löngu sannað að með því að hreyfa okkur reglulega erum við betur undir það búin að takast á við veikindi síðar á ævinni. Það er meðfæddur réttur fólks að hafa tækifæri til að taka þátt í samfélaginu, hvar sem það er statt á lífsleiðinni, og við sem samfélag eigum og þurfum að auðvelda fólki að taka ábyrgð á eigin heilsu því að lengi býr að fyrstu gerð. Þannig tökumst við á við þá áskorun sem felst í breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar og heilbrigðisþjónustu 21. aldarinnar.