störf þingsins.
Hæstv. forseti. Hv. þingmenn. Ég var að lesa Fréttablaðið fyrir nokkrum dögum og þar kom fram að sykurhátíðin væri handan hornsins. Það er nokkuð til í því og þess vegna vil ég ræða hér um jólin, hátíð sem svo oft er nefnd hátíð ljóss og friðar. Ég vil ræða um mataræði og samskipti og líðan fólks.
Við viljum að öllum líði vel um jólin, allir verði mettir og fái gjafir. Það er gaman að halda í hefðirnar en þó er rétt að temja sér hóf, sérstaklega hvað varðar reyktan mat, sykrað gos og annað sætmeti svo að dæmi sé tekið. Rannsóknir sýna að neysla sykurs hefur slæm áhrif á heilsuna og því miður leynist viðbættur sykur í margvíslegum matvælum þar sem lítið ber á honum, eins og t.d. í ýmsum sósum. Könnun á mataræði Íslendinga 2010–2011 sýnir að offita og ofþyngd verða æ algengari en tæplega 59% fólks á aldrinum 18–80 ára eru yfir kjörþyngd og 21% flokkast með offitu en árið 2002 var hlutfall þeirra 13,1%.
Það er betra að hemja átið en nú eigum við Íslendingar víst enn Norðurlandametið í sykuráti og hér á það ekki við að segja: Geri aðrir betur. Neysla á sykruðum gosdrykkjum hefur sem betur fer minnkað umtalsvert og því ber að fagna en ungt fólk sem drekkur sykrað gos oftar en tvisvar í viku fær mun meira af viðbættum sykri en ráðleggingar segja til um.
Svo eru það samskiptin og líðanin. Við höfum öll miklar væntingar til jólanna þar sem við viljum oft að allt sé svo fullkomið. Þess vegna skiptir ekki síður máli að kunna að setja sig í spor annarra og reyna það og sýna samúð þeim sem minna mega sín, hvort sem þeir hafa sjálfir komið sér í þá stöðu eða ekki.