149. löggjafarþing — 46. fundur,  11. des. 2018.

störf þingsins.

[13:59]
Horfa

Ellert B. Schram (Sf):

Virðulegur forseti. Ég hef fengið tækifæri til að setjast á þingbekk í nokkra daga. Mér finnst það skemmtilegt og ekki síst að fá tækifæri til að koma hingað sem fulltrúi eldri borgara því að ég þykist eiga nokkurt erindi til ykkar.

Stofnaður var starfshópur um málefni eldri borgara síðasta vor. Því miður hefur sá hópur ekki enn skilað neinum niðurstöðum. Í staðinn höfum við tillögur fjárlaganefndar sem fela í sér 3,6% hækkun á ellilífeyri frá almannatryggingum. Fólkið sem lítið eða ekkert hefur nú á milli handanna fær 239.500 kr. frá almannatryggingum og svo er rukkaður skattur til baka. Þetta eru upphæðir sem eru langt fyrir neðan framfærsluviðmið. Þetta er ellilífeyririnn til þess fólks sem býr við fátækt, veikindi, einangrun og tómleika.

Nú er ég ekki kominn hingað til að rífast eða skammast vegna þess að ég þykist vita að langflest ykkar hér á Alþingi eru velviljuð og eruð mér sammála um að taka þurfi til höndum og bjóða eldri borgurum upp á lífsgæði og áhyggjulaust ævikvöld. Elsta kynslóðin má ekki og á ekki að verða út undan.

Kæru þingmenn og -konur. Ég kem í þennan gamla góða ræðustól til að skora á ykkur að standa vörð um lífsgæðin og sinna því fólki sem komið er til ára sinna. Þótt ég sé sjálfur komin til aldurs og elli er erindið af minni hálfu hingað í þingsalinn (Forseti hringir.) það eitt, hvar í flokki sem þið standið, að sameinast um að aldraðir fái lifað og dáið með reisn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)