149. löggjafarþing — 46. fundur,  11. des. 2018.

heilbrigðisþjónusta o.fl.

185. mál
[15:18]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fagna því frumvarpi sem við greiðum nú atkvæði um af því að það eykur sveigjanleika í kerfinu, og fjölgar þar af leiðandi úrræðum. Þá er frekar hægt að bregðast við vanda hvers og eins eftir hagsmunum hvers og eins.

Það er mikilvægt fyrir okkur, ef við höfum það í huga þegar við fjöllum um þessi kerfi, að við látum félagslegu úrræðin spila sem mest saman þannig að við getum boðið upp á úrræði og aðstæður fyrir hvern og einn sem hentar honum best. Þess vegna fagna ég þessu frumvarpi og mun að sjálfsögðu styðja það.