149. löggjafarþing — 46. fundur,  11. des. 2018.

heilbrigðisþjónusta o.fl.

185. mál
[15:19]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Með þessu litla frumvarpi, sem lætur svo sem ekki mikið yfir sér, felst mikilvæg yfirlýsing. Með því er lagt til að einstaklingum yngri en 67 ára verði veitt heimild til að sækja um dagdvöl og dvalarrými. Raunar er verið að staðfesta í lög framkvæmd sem verið hefur við lýði um langt skeið. Eins langt og það nær er þessi breyting eðlileg og nauðsynleg.

En stjórnvöld boða áfram óbreytta hugmynda- og úrræðafátækt í stað þess að snúa við blaðinu og fara að vinna af kappi að fjölbreyttari búsetuvalkostum og stuðningi, bæði gagnvart eldra fólki og einstaklingum með fötlun. Nauðsynlegt er að koma til móts við þarfir einstaklinga með miklu markvissari hætti. En það gerir þetta frumvarp ekki. Það er ekkert í boði annað en óbreytt stefna. Steinrunnin stofnanavæðing sem gengur ekki lengur upp. Það gengur ekki upp fyrir nýja tíma, það gengur ekki upp fyrir nýja kynslóð.