heilbrigðisþjónusta o.fl.
Virðulegur forseti. Við erum að tala um dvalarrými fyrir ungt fólk. Það er engin takmörkun í sjálfu sér hversu ungt fólk gæti farið þar inn. Við getum spurt okkur sjálf: Ef við værum í þeirri aðstöðu, myndum við vilja dvelja á dvalarheimili fyrir aldraða þegar við erum undir 67 ára aldri? Svarið er einfaldlega: Nei. Þess vegna verðum við að tryggja að það fari enginn þarna inn þvingaður vegna þess að hættan er sú að litlu sveitarfélögin geti nýtt sér þetta. Þess vegna verðum við að segja nei við þessu og við verðum að finna önnur úrræði. Það á ekki að bjóða upp á þessa aðstöðu.