heilbrigðisþjónusta o.fl.
Virðulegur forseti. Ég kom aðeins inn í þessa umræðu í gærkvöldi og horfði þá á hana með gleraugum landsbyggðarkonu. Það er nú bara þannig, ég þekki það þar sem ég kem úr litlu byggðarlagi, að oft eru ekki önnur úrræði í boði, nema að flytja hreppaflutningum, en þau að fólk þurfi að fara inn á dvalarheimili. Við viljum að sjálfsögðu öll að yngra fólk eigi kost á og hafi annað val en það sem er í boði. En þegar um er að ræða dreifða byggð eins og á Íslandi er jafnvel ekki til mannskapur til að sinna, hvorki heimaþjónustu fyrir hönd sveitarfélaganna né notendastýrðri persónulegri aðstoð, þannig að við þurfum líka að horfa á þetta heildstætt. Það er ekki bara um að ræða mjög fatlaða einstaklinga, þetta getur auðvitað verið fólk sem hefur ekki tök á því að búa eitt heima heldur þarf það að fá daglega aðstoð sem því nemur. Þá er þetta kannski eina úrræðið.
Mér finnst svolítið horft fram hjá því sem hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson kom inn á áðan, (Forseti hringir.) að þetta er val. Þetta er viðbótarval við það sem maður hefur. Öll myndum við vilja að ungt fólk gæti dvalið þar sem því hentaði best og við stefnum auðvitað þangað. En gleymum því ekki að sveitarfélög eru mismunandi í stakk búin og öll viljum við vera sem næst fólkinu okkar.