149. löggjafarþing — 46. fundur,  11. des. 2018.

heilbrigðisþjónusta o.fl.

185. mál
[15:23]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég verð að lýsa yfir nokkrum áhyggjum af því að hér við 2. umr. og atkvæðagreiðslu skuli enn vera svona mikill misskilningur á ferð um hvað málið snýst. Að vel upplýstir og vel meinandi þingmenn skuli halda því fram að hér sé um afturför að ræða og að við horfumst ekki í augu við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Mér er nokkuð brugðið, verð ég að segja alveg í fullri einlægni, vegna þess að hér er verið að tryggja lagastoð undir ákveðna framkvæmd sem verið hefur í gangi. Verið er að tryggja að fleiri valkostir séu raunverulega í boði. Það verður enginn settur nauðugur inn í rými af þessu tagi. Við erum einmitt að tala um að viðkomandi geti sjálfur óskað eftir því ef það er mat þeirra sem best þekkja til að þessi þjónusta henti viðkomandi. Það er slíkur sveigjanleiki sem við verðum að hafa í samfélagi sem gerir ráð fyrir því að allir fái þjónustu við hæfi (Forseti hringir.) þar sem þá þjónustu er helst að fá.

Hér er að mínu mati um framfaramál að ræða en ekki afturför. Ég bið hv. þingmenn um að hugsa um þann vilja sem liggur að baki þessu máli.