149. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2018.

um fundarstjórn.

[20:12]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Það koma tímar þar sem jafnvel öflugustu keppnismenn þurfa að átta sig á þeim gömlu sannindum að kapp er stundum betra með forsjá. Ég held að það sé öllum ljóst eftir umræðu í þingsal undanfarna daga og eftir fréttir í fjölmiðlum í kvöld að þær tillögur sem verið er að kljást um eru Sjálfstæðisflokksins. Þar með held ég að starfandi formanni ætti að vera óhætt að setjast niður og leyfa umhverfis- og samgöngunefnd, leyfa þingheimi öllum, leyfa baklandinu, leyfa almenningi, að ræða þessi mál, að fá á hreint um hvað það snýst, hver ávinningurinn er, hvernig við getum best unnið þetta áfram í sátt. Þetta eru töluverðar breytingar, það mun ekkert gerast til að valda málinu skaða ef við gefum okkur þann tíma sem þinginu er sómi að til að vinna það áfram.