149. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2018.

um fundarstjórn.

[20:15]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Hér stöndum við frammi fyrir máli sem er risavaxið á alla kanta og varðar ótal svið þjóðlífsins. Það varðar líka, eins og ég hef vikið að áður, daglegt líf almennings í landinu. Það varðar daglegt líf nánast hvers einasta borgara landsins og það varðar skattheimtu á daglegt líf hvers einasta borgara landsins.

Ég efast ekkert um að hv. sitjandi formanni umhverfis- og samgöngunefndar finnist að ágætt samráð hafi átt sér stað. Ég er viss um að hann hefur átt ágætt samráð við sjálfan sig og hann hefur átt ágætt samráð við flokkinn sinn og hann hefur átt ágætt samráð við fólk í Valhöll og hann hefur jafnvel talað við félaga sína í hinum ríkisstjórnarflokkunum um þetta. En það er ekki nóg. Það hefur ekki verið haft nægilegt samráð við stjórnarandstöðuflokkana og það hefur ekki verið haft neitt (Forseti hringir.) samráð við almenning í landinu sem þetta kemur allt til með að bitna á.