149. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2018.

um fundarstjórn.

[20:22]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég er enn þá svolítið barnalegur að því leyti að ég spyr mjög oft af hverju hlutirnir eru eins og þeir eru. Þegar kemur að hinum ýmsu þingtæknilegu ferlum og því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig get ég yfirleitt fundið eitthvert svar. Það er ekki endilega rétt svar en ég get fundið svar. Ég get ímyndað mér að einhver ástæða sé fyrir því að ákveðnir hlutir gerist, ýmis vegna þess að reglurnar eru einhvern veginn eða af því að fólk hefur ákveðið að nota reglurnar á annan hátt, yfirleitt vegna þess að það hentar fyrir umræðuna eða pólitíkin eða hvað eina.

Það sem ég skil hins vegar ekki og fatta engan veginn er hvaða hagsmunum það á að þjóna þegar þetta mál er vísvitandi sett í ósætti, sér í lagi af hálfu hv. þm. Sjálfstæðisflokksins. Ég fatta ekki hvaða hagsmuni hv. þingmaður er að verja með því að gera það. Af hverju ekki að leyfa málinu að fá þá umræðu sem það þarf? Þá er ég ekki bara að tala um umræðu hér, ég er að tala um umræðu í samfélaginu. Fólk er enn mjög á móti í umræðunni og þarf kannski rökræðu til að sjá (Forseti hringir.) hvað þetta er allt saman frábært mál. Það getur vel verið. (Forseti hringir.) Það eru ekki aðeins við á Alþingi og skoðun okkar (Forseti hringir.) sem skiptir máli, það skiptir líka máli hvað fólki úti í bæ finnst. Það skiptir máli að það átti sig á því hvers vegna við gerum hlutina eins og við gerum þá. (Forseti hringir.) Það er ekki nóg að skrifa nefndarálit til þess. Fólk þarf tíma. Af hverju má ekki gefa hann? (Forseti hringir.) Hvað liggur á?