um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að segja að ég hef ekkert við fundarstjórn hæstv. forseta að athuga. Ég velti því fyrir mér um hvað umræðan hérna inni snýst. Ég verð að segja að ég er alveg ótrúlega spennt fyrir því að ræða samgönguáætlun og nýjar leiðir í samgöngumálum. Ef við hefðum eitthvað í höndunum og þetta væri á dagskrá væri fínt að gera það. En þegar sumir hv. þingmenn hafa setið í umhverfis- og samgöngunefnd, þar sem augljóslega er kominn upp einhver ágreiningur, en aðrir ekki er rosalega erfitt að taka þá umræðu, enda erum við í umræðu um fundarstjórn forseta. Ég velti fyrir mér af hverju hv. umhverfis- og samgöngunefnd hittist ekki aftur og fer yfir málið og ef afgreiða á málið út úr nefndinni er það gert og þá fáum þau gögn hingað inn og getum tekið málefnalega umræðu um samgönguáætlun. (Gripið fram í.) Ég sé ekki að það skili árangri þegar við erum með fulla dagskrá af mikilvægum málum að ræða að eyða tíma í fundarstjórn forseta, hæstv. forseti.