149. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2018.

um fundarstjórn.

[20:26]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Við gerum okkur auðvitað öll grein fyrir að hér er um stórmál að ræða sem þarfnast víðtækrar og vandaðrar umræðu með þátttöku þings og raunar þjóðarinnar líka.

Hv. starfandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar, Jón Gunnarsson, er nútímalega þenkjandi maður. Menn fara ekkert í grafgötur með það. Hann hefur mikinn metnað fyrir bættum samgöngum. En það er ekki við alþýðuskap hvernig hann beitir sér í málinu, hann segist hafa haft mikið samráð en það hefur skort á það dálítið innan þingsins. [Kliður í þingsal.] Ég held að við verðum að leggja áherslu á að við vinnum þetta eftir hefðbundnum leiðum. Við vitum að gera þarf stórfellt átak í samgöngumálum en við þurfum að skapa um það sátt í samfélaginu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

(Forseti (ÞorS): Forseti mælist til þess að hljóð sé í þingsal og hliðarsölum.)