um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Vegna þessa sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir talaði um áðan vil ég segja að þetta er kannski dálítið óskiljanlegt fyrir þá sem eru fyrir utan nefndina. En það er einmitt texti og í rauninni stefnubreyting sett fram í nefndaráliti meiri hlutans. Ef það kemst út úr nefndinni á því formi er málið eiginlega sjálfdautt á þinginu. Sú ákvörðun sem er tekin þar er ekki afturkallanleg því að hún er bara tilmæli til ráðherra í nefndarálitinu. Rifrildið snýst dálítið um það, að nefndarálitið geti ekki verið svona og bundið hendur þingsins og framhald málsins á þennan hátt.
En svo er ég líka áhugamaður um að kalla hlutina réttum nöfnum og ég vil minna á að þetta er skattahækkun upp á a.m.k. 5 milljarða á ári. Ég vil minna þingheim á að það tengist ekki alveg þeirri fjármálastefnu sem er í gildi að fara eigi í 5 milljarða kr. skattahækkun á ári til að fjármagna þessi verkefni.