um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég má til með í fyrsta lagi að taka undir orð hæstv. forsætisráðherra Katrínar Jakobsdóttur. Ég hélt einmitt að þetta mál væri í farvegi hjá formönnum flokkanna. Það var einmitt ástæðan fyrir því að ég sat róleg og beið, en mér var bent á kvöldfréttirnar þar sem sitjandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar tjáði okkur að það stæði til að taka þetta mál út á morgun eða hinn og stefnan væri tekin á að taka það út. Ég var í góðri trú um að það væri enn þá til umræðu og fannst skjóta skökku við að í stað þess að fara aftur á fund formanna til að ræða framhald þessa máls fengi ég um það fréttir í sjónvarpsfréttum. Mér finnst það bara ekki merki um gott samráð. Það er ástæðan fyrir því að ég brást ekkert sérstaklega vel við þessum aðstæðum. Mér finnst það frekar eðlilegt.
Hvað orð hv. þingmanns Birgis Ármannssonar varðar um lengd þessarar umræðu þá skiptir máli fyrir okkur að koma því vel á framfæri að við þurfum tíma til að ræða þetta mál og það skiptir okkur máli að hafa tíma til að ræða við fólk í okkar kjördæmum, við fólk í okkar (Forseti hringir.) kjósendahópum, við fólk í okkar samfélagi, um hvað því finnist um þetta mál (Forseti hringir.) áður en það er tekið til umræðu og sá tími kostar líka, líka í fundarstjórn forseta.