149. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2018.

um fundarstjórn.

[20:40]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Forseti. Það var auðvitað mikilvægt og ánægjulegt að hæstv. forsætisráðherra tæki til máls og ítrekaði á hvers forræði málið er sem stendur. Það er mikilvægt.

Hins vegar varðandi málið sjálft og hversu vel ígrundað og tilbúið það er þá hef ég séð núna á síðasta eina og hálfa tímanum a.m.k. tvær útgáfur af gögnum frá hv. samgöngunefnd og í einni af töflunum sem fylgir þar munar ekki nema u.þ.b. litlum 10 milljörðum, svona í prófarkalestri væntanlega. Ein Hvalfjarðargöng horfin út. Þannig að mér sýnist nú að vinnubrögðin séu kannski dálítið hroðvirknisleg. (Forseti hringir.) En það er gott að vita hvar málið er og hvar ákvarðanir verða teknar um framhald þess.