149. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2018.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2018 um breytingu á IX., XII. og XXII. viðauka við EES-samninginn.

339. mál
[22:11]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Rósa Björk Brynjólfsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti, eins og herra forseti minntist á í upphafi, um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 21/2018 um breytingu á IX. viðauka um fjármálaþjónustu og XII. viðauka um frjálsa fjármagnsflutninga og XXII. viðauka um félagarétt við EES-samninginn.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 21/2018 frá 9. febrúar 2018, um breytingu á IX. viðauka um fjármálaþjónustu, XXII. viðauka um frjálsa fjármagnsflutninga og XXII. viðauka, er snertir félagarétt, við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59 sem setur ramma um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og breytingu á tilskipun ráðsins 82/891 og tilskipunum frá 2001, 2002, 2004, 2005, 2007, 2011, 2012 og 2013, sem og reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1093/2010 og nr. 648/2012.

Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 9. ágúst 2019. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Tilskipun nr. 59/2014 um endurbætur og skilameðferð fjármálafyrirtækja mælir fyrir um viðbrögð og aðgerðir til að takast á við erfiðleika í rekstri fjármálafyrirtækja. Slíkum fyrirtækjum og stofnunum beri að gera sérstaka endurbótaáætlun sem búi þau undir erfiðleika í rekstri og að sérstakt stjórnvald eða stjórnsýslueining sem nefnt er skilavald útbúi sérstaka skilaáætlun sem það getur hrint í framkvæmd með skjótum hætti ef nauðsyn þykir til að takast á við áföll í rekstri stærri lánastofnana.

Tilskipunin hefur jafnframt að markmiði að lágmarka neikvæðar afleiðingar af erfiðleikum fjármálafyrirtækja með því að tryggja áframhaldandi kerfislega mikilvæga starfsemi viðkomandi fyrirtækis eða fyrirtækja en takmarka um leið hættu á að erfiðleikar kalli á framlög úr ríkissjóði.

Í tilskipuninni er kveðið á um skilasjóð. Honum er ætlað að tryggja skammtímafjármögnun vegna ýmissa aðgerða sem hægt er að grípa til við skilameðferð. Skilasjóðurinn verður að meginstefnu til fjármagnaður af fjármálafyrirtækjum. Þá er fyrirséð að kostnaður muni aukast fyrir þau fjármálafyrirtæki sem undir reglurnar falla og munu þær ef til vill breyta áhættusækni fyrirtækjanna, enda fylgir reglunum að hluthafar og lánardrottnar skulu bera stærri hluta tjóns ef illa fer í rekstri fjármálafyrirtækis.

Það kemur fram í nefndaráliti hv. utanríkismálanefndar að almenningur hefur mikilla hagsmuna að gæta af því að samfella á fjármálamarkaði sé tryggð, komi til áfalla, og að kostnaður við fjármálaáföll verði að litlu, ef nokkru, leyti fjármagnaður með skattfé.

Hluti tilskipunar nr. 59/2014 hefur nú þegar lagastoð í lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Eftirstandandi ákvæði verða innleidd með fyrirhugaðri setningu nýrra heildarlaga um endurreisn og skilameðferð fjármálafyrirtækja. Þá er gert ráð fyrir því að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram slíkt frumvarp á yfirstandandi löggjafarþingi.

Undir þetta nefndarálit rita Rósa Björk Brynjólfsdóttir framsögumaður, formaður hv. utanríkismálanefndar, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Logi Einarsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Una María Óskarsdóttir og Smári McCarthy.