149. löggjafarþing — 48. fundur, 12. des. 2018.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá 4. þm. Reykv. s., Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag, miðvikudaginn 12. desember, tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Snæbjörn Brynjarsson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.
Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.