149. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa tvö bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 254, um íslenska ríkisborgara á Bretlandi og útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, frá Jóni Steindóri Valdimarssyni, og þskj. 443, um fjölda starfsmanna sem vinna við gerð lagafrumvarpa, frá Karli Gauta Hjaltasyni.