149. löggjafarþing — 48. fundur, 12. des. 2018.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2019.
3. mál
Herra forseti. Tvö meginþemu einkenna þetta frumvarp, annars vegar áframhald bráðabirgðaákvæða, framlenging á ákvæðum sem sett voru við allt aðrar aðstæður en nú eru uppi, og hins vegar sjálfvirk hækkun gjalda.
Það skortir algjörlega framtíðarsýn og enginn metnaður er lagður í langtímaáætlanir í stórum velferðarmálum. Það á t.d. við um málefni sem snerta öryrkja og uppbyggingu og rekstur hjúkrunarheimila. Við í Samfylkingunni munum ekki styðja þetta frumvarp.