breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2019.
Herra forseti. Í þessu frumvarpi er að finna eðlilegar hækkanir vegna hækkunar á verðlagi. Á það t.d. við um hækkun á áfengi og tóbaki. Hins vegar eru hér áherslur ríkisstjórnarinnar sem Miðflokkurinn getur ekki stutt. Má þar nefna hækkun á kolefnisgjaldi. Kolefnisskattur ríkisstjórnarinnar er stefnulaus. Honum er ekki jafnað niður á landsmenn með sanngjörnum hætti. Ríkisstjórnin hefur hækkað þetta gjald úr öllu hófi.
Hér er verið að lækka gjöld á fjármálafyrirtæki, banka og tryggingafélög. Það er sérstakt áhugamál ríkisstjórnarinnar að gera vel við bankana og hlakkar Sjálfstæðisflokkurinn yfir undanlátssemi Vinstri grænna í þeim efnum. Í sama frumvarpi er verið að hækka gjald á eldri borgara á dvalarheimilum. Og enn er vegið að öryrkjum með því að lækka framlög til starfsendurhæfingarsjóðs.
Ég segi nei.