149. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2018.

Þjóðarsjóður.

434. mál
[18:44]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Þó svo að fjárfestingarnar séu bundnar við erlenda fjárfestingu held ég að það mætti engu að síður skerpa á áherslum á framtíðarfjárfestingar og grænar fjárfestingar í frumvarpinu.

Mig langar síðan í seinna andsvari að spyrja hæstv. ráðherra um tekjur inn í sjóðinn. Ég velti fyrir mér hvort skynsamlegra væri að gera tekjur Þjóðarsjóðs fjölbreyttari. Hæstv. ráðherra hefur verið tíðrætt um arðgreiðslur úr Landsvirkjun og því spyr ég hvort skynsamlegra væri að láta tekjur koma úr fleiri áttum en úr orkufyrirtækjunum og orkuvinnslufyrirtækjum, til að mynda við sölu eigna o.s.frv., hvort það mætti t.d. gera að fjölbreyttari tekjuleið fyrir sjóðinn.