Þjóðarsjóður.
Virðulegi forseti. Það er sjálfsagt að ræða fjárfestingarstefnuna. Við leggjum það mjög í hendur stjórnar sjóðsins að koma með tillögu að fjárfestingarstefnu en ég held að aðalatriðið þar sé að við náum eðlilegri ávöxtun og það má vel sjá fyrir sér góða ávöxtun með því að leggja áherslu á ákveðna geira, eins og þingmaðurinn bendir á.
Varðandi aðra tekjuuppsprettu verður að segjast eins og er að ástæðan fyrir því að þetta mál verður til eru þau tímamót sem eru að verða í rekstri Landsvirkjunar þar sem við horfum til þess á allra næstu árum að það geti komið arðgreiðslur til ríkisins upp á 10–20 milljarða á ári hverju. Það er meginástæðan fyrir því að við stígum þetta skref núna, án þess að maður girði neitt fyrir að það verði annars konar tekjur, t.d. vegna leigu á orkuauðlindum, (Forseti hringir.) sem skili sér jafnframt þarna inn samkvæmt annarri sérstakri ákvörðun þingsins. Það er líka gert ráð fyrir því að þingið geti tekið ákvörðun um að ráðstafa t.d. andvirði sölu (Forseti hringir.) ríkiseigna til sjóðsins.