149. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2018.

Þjóðarsjóður.

434. mál
[18:46]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa ágætu umræðu og þakka hæstv. ráðherra. Það eru nokkur atriði sem ég kom ekki að í andsvari sem mig langar aðeins að koma inn á. Í fyrsta lagi tel ég að hér sé um mjög gott mál að ræða og mikilvægan sjóð. Ég fagna því sérstaklega að til hans sé stofnað á 100 ára afmæli fullveldisins. Það er vel við hæfi, eins og hæstv. ráðherra nefndi. Þessi sjóður mun geyma verulegar fjárhæðir, það er nokkuð ljóst, og þess vegna er afar mikilvægt að vel takist til með stofnun hans og alla starfsemi.

Ég vil koma aðeins inn á 3. gr. frumvarpsins þar sem fjallað er um stjórn sjóðsins og hæfisskilyrði. Reyndar kom hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson inn á það í andsvari áðan. Hæfisskilyrði verða að vera algjörlega yfir allan vafa hafin. Þess vegna er svolítið brýnt að fá upplýsingar um það hvernig þessir fimm stjórnarmenn eru og verða valdir og hver það er sem velur þá. Hér segir að þrír stjórnarmenn skuli tilnefndir af Alþingi og þá þurfum við að fá upplýsingar um það. Vonandi verður það þá rætt innan nefndarinnar hvernig Alþingi velur þessa þrjá stjórnarmenn. Síðan mun forsætisráðherra velja einn fulltrúa og fjármála- og efnahagsráðherra skipar formann stjórnar.

Það er nauðsynlegt að það verði rætt innan nefndarinnar með hvaða hætti menn sjá fyrir sér að þessir mikilvægu einstaklingar sem verða í stjórn þessa mikilvæga sjóðs verði valdir. Í 7. gr er fjallað um svonefnda matsnefnd, en hún lýtur ekki að þessum þætti. Mér finnst það svolítill veikleiki að það sé ekki nægilega skýrt um þennan mikilvæga þátt. Síðan er annað; hver á að meta hæfi þessara stjórnarmanna? Væntanlega fer eitthvert ráðningarferli í gang í þessum efnum, geri ég ráð fyrir.

Ég hjó eftir því, ég hef a.m.k. ekki rekist á það enn þá, að ekkert er minnst á hvort stjórnarmaður þurfi að vera íslenskur ríkisborgari. Það væri gott að fá upplýsingar um það.

Síðan segir í greinargerðinni með frumvarpinu um 3. gr. að gert sé ráð fyrir því að stjórnin sé skipuð sérfræðingum sem njóta trausts. Þá spyr maður sig: Hver er það sem metur hvort viðkomandi nýtur trausts? Það þarf að vera á hreinu hvernig staðið verður að því mati.

Auk þess kom ég inn á það áðan í andsvari við hæstv. ráðherra að ekki kom fram hverjir eigi að hafa eftirlit með störfum stjórnar. Ég held að það sé nauðsynlegt að það sé til staðar og þar finnst mér vanta ákveðið gegnsæi.

Síðan minntist hæstv. ráðherra á að stjórnin myndi skila skýrslu, væntanlega, en ég gat ekki séð að krafa væri um að stjórnin skilaði skýrslu til Alþingis. Það er nokkuð sem þarf að ræða að mínum dómi.

Í greinargerðinni kemur fram að stjórnin muni hafa yfirumsjón með rekstri og fjárfestingum og kemur til með að semja við hæfan aðila um vörslu sjóðsins, rekstur og fjárfestingar, eins og hæstv. ráðherra kom inn á. Ekkert er minnst á siðferðileg gildi fjárfestingarstefnunnar að öðru leyti en því sem segir í 8. gr. og ég rakti áðan, að ekki skuli fjárfest í fjármálagjörningum sem gefnir eru út af fyrirtækjum eða stofnunum sem stunda eða eru viðriðin starfsemi sem stangast á við góða siði. Ég er á því að það verði að skýra betur því að þetta er vandasamt verk og kom hæstv. ráðherra einnig inn á það áðan. Það verða að mínum dómi að vera einhvers konar verklagsreglur hvað þetta varðar, það getur einfaldlega ekki verið matskennt meðal stjórnarmanna hvað teljast góðir siðir.

Svo minntist hæstv. ráðherra á norska olíusjóðinn, sem ég held reyndar að heiti eitthvað annað í dag, en það er nú önnur saga. Hann fjárfestir utan norska hagkerfisins. Það er mikilvægt í mínum huga að þessi Þjóðarsjóður okkar fjárfesti ekki innan lands og ef ég skildi það rétt á framsögu hæstv. ráðherra myndi Þjóðarsjóður ekki fjárfesta innan lands. En í andsvari sagði ráðherra hins vegar að það væri óheppilegt og ekki ráðlegt. Ég held að það verði að vera alveg á hreinu vegna þess að það getur haft ýmisleg áhrif ef sjóðurinn fer að fjárfesta hér innan lands ef hann er orðinn stór, og að sjálfsögðu má sjóður sem þessi alls ekki fara að fjárfesta í einhverri bólumyndun. Þannig að það er mikilvægt í mínum huga að sjóðurinn fjárfesti í útlöndum.

Þetta er að sjálfsögðu allt saman mjög vandasamt verk. Við þekkjum dæmi þess að t.d. norski olíusjóðurinn hefur tapað milljörðum á einum degi, og reyndar hefur hann líka hagnast um einhverja milljarða á fáeinum dögum. En það sýnir hversu vandasamt þetta er og mikilvægi þess að vel verði að þessu staðið öllu saman þannig að þessi mikilvægi sjóður verði landi og þjóð til sóma. Ég fagna þessu frumvarpi.