aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Virðulegi forseti. Ég vil gera grein fyrir fyrirvara sem kom fram í nefndaráliti frá fulltrúa Pírata. Fyrirvarinn varðar það að frumvarpið innleiði tilskipun sem ekki hafði verið tekin upp í EES-samninginn eða fallið var frá stjórnskipulegum fyrirvara þegar málið var lagt fram. Það teljum við fela í sér slæma röðun atvika sem við eigum ekki að venja okkur á. Hægt er að sýna því skilning í þetta skiptið vegna þess að það var ákveðin tímapressa, og ekki síst vegna þess að tilskipunin hefur verið tekin upp í EES-samninginn og heimild veitt til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu utanríkismálanefndar meðan málið var til afgreiðslu í efnahags- og viðskiptanefnd. Fyrirvarinn er því ekki gerður við efni frumvarpsins sem slíks heldur það ferli sem frumvarpið fór í gegnum. Við vonum svo að sá háttur verði ekki hafður á í framtíðinni eða verði í það minnsta ekki að vana.