149. löggjafarþing — 49. fundur, 13. des. 2018.
aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
314. mál
Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um heildarlög um peningaþvætti, sem er hið besta mál, en þurft hefði aðeins meiri tíma og vinnu í að skoða það aðeins betur. Samfylkingin styður þetta mál samt sem áður vegna þess, eins og hér hefur komið fram, að við höfum alls ekki staðið okkur hvað þetta varðar. Við teljum mjög mikilvægt að á næsta ári, á árinu 2019, verði þetta mál tekið upp aftur og rætt betur og að farið verði meira í aðgerðir á Íslandi gegn peningaþvætti.